Sjálfsmat Lindaskóla.
Á yfirstandandi skólaári er unnið að aðgerðaráætlun vegna kennara. Þar er fylgt aðgerðaráætlun þeirri sem samþykkt var á kennarafundi 21. maí 2008 og birt er á heimasíðu okkar.
Við stundatöflugerð var tekið tillit til óska kennara t.d. um samliggjandi tíma í árgöngum til að hægt sé að auka samvinnu innan árgangsins. Einnig var skipulögð fækkun nemenda í matsalnum svo síður komi til árekstra þar og til að minnka álag. Nú borða nemendur 1. – 4. bekkjar í stofunum sínum með umsjónarkennara.
Kennarar taka tillit til aðgerðaráætlunarinnar við gerð kennsluáætlana sinna og námsvísa og fylgja þeim þáttum sem þeir töldu að þyrfti að bæta.
Í Lindaskóla starfa mjög metnaðarfullir og hugmyndaríkir kennarar. Vandinn er að þeir eru hver í sinni kennslustofu með sínum nemendum og samstarfsfólk veit ekki alltaf af því sem fram fer í öðrum stofum.
Fyrirhugað er að í vetur muni kennarar í auknum mæli stunda jafningjafræðslu og kynna starf sitt, nýjungar og góðar hugmyndir hver fyrir öðrum.